Vatnaliljurnar

INFO

LEIKMENN

LEIKIR

MYNDASAFN

SPJALL:
Name

URL or Email

Messages(smilies)



Leikmenn sem blogga:

Elvar

Guðni

Guðjon

Kristjan





 
Archives
<< current













 
Tenglar:

Fotbolti.net

KSI.is

Carlsberg deildin

Ufsinn

Gafflinn

Skolp














 
föstudagur, desember 05, 2003  
Vetur
Vatnaliljurnar eru nú í dvala eins og gerist oft hjá blómum, sem við svo sannarlega erum. Menn eru þess í stað á fullu að einbeita sér að heitum möguleikum útí heimi sem gætu sómað sér vel í sterkum leikmannahópi okkar.
Fjarmálin hafa styrkst með tímanum, og vert er að minnast á það að Vatnaliljurnar unnu fótboltamót á dögunum og hömpuðu þar inn 10.000 kr í sarpinn.
Nú er jólamánuður genginn í garð og óskum við þar með öllum velunnurum Vatnaliljanna gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Kveðja. Oddur Jóakimsson
Fjarmálastjóri.

5:01 PM

fimmtudagur, ágúst 14, 2003  
Leikur í kvöld
Mæting fyrir leikmenn kl.19:15 en leikurinn sjálfur hefst kl.20:00. Ekkert verður gefið upp um byrjunarliðið en Andri Stefánsson mun bera fyrirliðabandið í kvöld þar sem Kristján Ari Halldórsson verður ekki í hóp í kvöld. Kristján mun þó vera vip hliðarlínuna og veita liðinu andlegan stuðning.

Fjármálin eru að komast í samt lag og verður allt klappað og klárt þega flautað verður til leiks kl.20:00

1:02 PM

þriðjudagur, ágúst 12, 2003  
Allt aftur á fullt á fimmtudag
Búið er að leggja nýtt teppi á Leiknisvöllinn og því getur Carlsberg-deildin loks hafist að nýju. Við eigum leik á fimmtudaginn gegn Jónatanlækni og hefst leikurinn kl.20:00. Á morgun miðvikudag verður hinsvegar haldinn neyðarfundur félagsmanna og verður hann nánar auglýstur með SMS-tilkynningu á morgun.

Það er að duga eða drepast en leikurinn á fimmtudag verður að vinnast. Það kemur ekkert annað til greina, svo einfalt er það. Stjórnin hefur notað sumarið til að styrkja liðið fyrir átökin framundan en vill ekki gefa upp hvaða leikmenn hafa verið fengnir til liðsins. Það mun allt koma í ljós þegar liðin ganga inn á völlinn á fimmtudagskvöld.

Fjárhagsmál
Fjárhagsmálin hafa verið helsta áhyggjuefni Vatnaliljanna á þessu tímabili. Sem stendur skuldum við Carlsberg deildinni 22 þúsund krónur, reyndar 20.000 þar sem Olli markvörður skuldar þennan 2.000 kall sem hann borgaði ekki við seinustu rukkun. Þá eru tveir leikmenn sem skulda stjórn Vatnaliljanna 2.000 kall, Oddur Þorkell og Ari Björn. Þetta verður að borga á fimmtudaginn og skulu allir verða tilbúnir með pening á morgun þegar neyðarfundur verður haldinn hátíðlegur.

5:14 PM

föstudagur, júlí 11, 2003  
Off-season
Eins og flestir vita þá er Off-season núna hjá okkur Liljunum. Þennan tíma munu stjórnendur félagsins nota til að skoða leikmenn og sötra öl. Nei, ég meina koma okkur í form.
Æfingar hefjast á næsta leyti, þegar heppilegur staður hefur verið fundinn til slíkra aðgerða. Mótið hefst svo að nýju í ágúst og vonandi verða allir orðnir ferskir þá.

Kveðja,
Ykkar formaður,
Guðni Rúnar Gíslason

11:36 PM

laugardagur, júní 21, 2003  
Heimasíðan
Vatnaliljusíðan hefur legið í nokkurri lægð eins og liðið sjálft reyndar. En breyting skal verða á því. Hér eftir verður uppfærslan mun stöðugri.

HLÉ á mótinu
Verið er að skipta um gras á Vatnaliljuvellinum og því munum við ekki leika okkar næsta leik fyrr en Fimmtudaginn 5.ágúst en þá er Jónatanlæknir mótherji okkar. Það verður næst seinasti leikurinn í Riðlakeppninni en sá seinasti verður leikinn Fimmtudaginn 14.ágúst. Svo hefst úrslitakeppnin með miklum stæl. Hér má annars finna leikjaskrána okkar með lista yfir markaskorara okkar og fleira gotterí.

Við erum sem stendur í fjórða sætinu en tveir næstu leikir okkar VERÐA að vinnast ef settu markmiði skal náð.

STAÐAN EFTIR FIMM UMFERÐIR
1 Fridays 12
2 Ufsinn 11
3 Innri fegurð 10
4 Vatnaliljurnar 7
5 Elliði 6
6 FC Birgitta Haukdal 6
7 Væringjar 3
8 Jónatanlæknir 3

Leikmannamál
Seinustu tvo leiki hafa Vatnaliljurnar leikið með vængbrotið lið en næstu leiki verðum við fullskipaðir að mestu leyti fyrir utan að Kristján fyrirliði verður líklega ekki með í næsta leik. Svo verðum við bara að krossleggja fingur og vona að engin meiðslavandræði koma upp. Annars er búið að endurbæta leikmannasíðuna hérna.

Fjármál
Erum mun betur staddir þar en áður. Höfum borgað 18 þúsund kall að ég held af þessum 40 þúsundum.

Tap í seinasta leik
Já við töpuðum seinasta leik fyrir hlé 2-3. Vorum með mun sterkara lið en þessir Væringjar en getum sjálfum okkur um kennt. Óli Jóns og Dóri skoruðu mörkin.

2:44 PM

fimmtudagur, júní 12, 2003  
LEIKUR Í KVÖLD
Í kvöld leikum við okkar seinasta leik fyrir hlé og hefst leikurinn kl.20:00. Aftur munum við tefla fram vængbrotnu liði en eftirtaldir eru fjarverandi:

Tommi: Keppa með ÍR
Jói: Keppa með ÍR
Maggi H: Keppa með ÍR
Kristján: Keppa með ÍR
Knútur: Meiddur
Ari: Meiddur
Maggi I: Keppa með Fylki, old boys
Gunni Batistuta: Verða pabbi.
Maggi Kók: Keppa með HK.

Fjármálasöfnun
Vel gengur að safna 20.000 kallinum sem við ætlum að borga á eftir...

3:59 PM

sunnudagur, júní 08, 2003  
Seinasti leikur
Kjúklingarnir okkar töpuðu 2-5 fyrir Elliða í seinasta leik. Þrátt fyrir að Olli hafi verið að finna sig í markinu þá gekk þetta ekki upp á fimmtudag. Sanngjarn sigur Elliða staðreynd. Mörk okkar skoruðu Gunnar Batistuta og Oddur Þorkell Jóakimsson. Næsti leikur á fimmtudaginn og þá verðum við að gera betur!!!

10:56 PM

fimmtudagur, júní 05, 2003  
Leikur gegn Elliða í kvöld
Í kvöld leikum við Vatnaliljurnar gegn Elliða í Carlsberg deildinni. Leikur hefst kl.20:00 og verður í beinni á Sýn. Leikmenn mæta 19:20 á Leiknisvöllinn.

Liðið leikur án eftirfarandi leikmanna:
Arnar Magnússon (Leikur hjá ÍR)
Tómas Árni Ómarsson (Leikur hjá ÍR)
Magnús Halldórsson (Leikur hjá ÍR)
Jóhann Björnsson (Leikur hjá ÍR)
Guðni Rúnar Gíslason (Vinnandi maður)
Kristján Ari Halldórsson (Útskrift)
Knútur og Ari (Meiddir)
Dór (Meiddur)
Elvar (Veikur)

Hisnvegar verður Gunni Batistuta á sínum stað ásamt Ólafi Þórissyni, nýjum leikmanni okkar sem er til reynslu hjá Liljunum.

Við hvetjum áhorfendur um að vera mættir tímanlega til að fá sæti.

5:49 PM

föstudagur, maí 30, 2003  
Ávarp frá formanninum.
Eins og margir tóku eftir stóð ég á hliðarlínunni í leiknum á móti Friday´s í gær. Aganefnd Vatnaliljanna tók þá ákvörðun sem ég mótmælti ekki að setja mig í agabann þetta kvöldið.
Ég biðst innilegar afsökunar á athæfi mínu og vona að ég hafi ekki skaðað ímynd félagsins á nokkurn hátt. Ég viðurkenni fúslega að hafa brugðist félaginu, leikmönnum þess og stuðningsmönnum. Slíkt er auðvitað óafsakanlegt en ég vona að félagið og allir sem að félaginu koma geti fyrirgefið mér og vilji notast við þjónustu mína við félagið í framtíðinni.
Áfram Vatnaliljurnar,
Guðni Rúnar Gíslason iðrandi Formaður

5:11 PM

 
GÓÐUR OG SANNGJARN SIGUR Á FRIDAYS
Við mættum vel stemmdir til leiks í nýju búningunum okkar í gær. Leikurinn átti víst að byrja 20:00 en ekki 21:00 eins og áður var talið en hann byrjaði svo á endanum u.þ.b. 20:40. Byrjunarliðið var svona: Olli - Maggi Ingva - Maggi Kók - Andri - Maggi H - Kristján - Dóri.

Já, Dóri að spila sinn fyrsta leik í framlínu okkar og mætti vel klæddur til leiks í blíðviðrinu í gær. Á bekknum var annar nýr liðsmaður okkar, Gunnar. Hann er mágur Magnúsar Halldórssonar og kom til liðsins í gær fyrir tilstuðlan hans. Grjóni var í fyrsta sinn á bekknum hjá okkur en hann er mjög tæpur vegna meiðsla, hann kom ekki inn á í þessum leik en mun örugglega láta ljós sitt skína í næstu viku.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkur og Fridays komust yfir með marki af löngu færi eftir aðeins tvær mínútur. Vörnin var ekki að standa sig og Olli misreiknaði sig í markinu. Allan fyrri hálfleikinn sóttum við mun meira en náðum ekki að sækja gull í greipar andstæðinganna. Seinni hálfleikurinn byrjaði svo eins og sá fyrri var, við sóttum mun meira en vorum ekki að nýta færin.

Fridays fengu skyndisókn og skyndilega komnir í 2-0. En áfram héldu Vatnaliljurnar að berjast og það skilaði því að Dóri fékk vítaspyrnu. Hann braut síðan regluna um að maður sem brotið er á fái ekki að taka víti. Hann skoraði af öryggi og minnkaði muninn í 2-1. Dóri var alls ekki hættur og laggði síðan upp tvö skallamörk fyrir Jóa, mjög svipuð mörk og við komnir í 3-2. Þannig endaði síðan leikurinn. Gaman var að sjá hvernig Dóri kom út í sókninni og náði vel saman við Jóa sem átti stórleik. Þá vil ég einnig nefna að Maggi Kók spilaði gríðarvel og Gunnar kom ferskur inn.

Glæsilegur 3-2 sigur og leikmenn sýndu mikinn karakter með því að gefast ekki upp í stöðunni 0-2 og vinna 3-2..

LEIKMANNALISTINN
Um helgina verður staðið í endurbætum á leikmannalistanum en hann hefur tekið þónokkrum breytingum. Myndir koma inn af fleiri leikmönnum, o.s.fr.v.
12:50 PM

miðvikudagur, maí 28, 2003  
LEIKUR GEGN FRIDAYS
Skyndibitastaðurinn Fridays eru mótherjar okkar í Carlsberg deildinni í kvöld. Tekinn var æfingaleikur í gær á Kaplakrikavelli, létt upphitun fyrir leik kvöldsins. Leikurinn í kvöld er svo sannarlega stórleikur því Fridays hafa unnið báða sína leiki í deildinni stórt. En við munum að öllum líkindum tefla fram nýja sóknarmanninum okkar, honum Dóra, í kvöld. Hvet alla til að mæta á leikinn með góða skapið í góða veðrinu. Leikmenn mæta 20:30 en hálftíma síðar hefst leikurinn.
11:50 AM

mánudagur, maí 26, 2003  
21:00
Leikur okkar á fimmtudaginn gegn Fridays er kl.21:00 en ekki 22

Búningar
Vil minna menn á að passa nýju búningana sína vel.
3:06 PM

föstudagur, maí 23, 2003  
Albert kvaddi með látum
Albert Sölvi Óskarsson heldur senn á Sauðárkrók og mun því ekki spila með Vatnaliljunum á næstunni. Hann kvaddi með miklum látum í gær þegar Vatnaliljurnar léku sinn annan leik í Carlsberg-deildinni gegn FC Birgittu Haukdal. Leikurinn fór rólega af stað en Vatnaliljurnar voru mun sterkari og fékk undirritaður m.a. dauðafæri en klúðraði því á mjög kjánalegan hátt :-) Í fyrsta sinn í sögu Vatnaliljanna komumst við 1-0 yfir en þar var að verki Albert Sölvi Óskarsson sem fékk nóg pláss og tíma til að skjóta. Staðan 1-0 í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum náðu mótherjarnir að jafna gegn gangi leiksins og allt í járnum. Albert var alls ekki hættur og kom okkur aftur yfir. Staðan 2-1. Í þeirri stöðu átti Birgitta skot í stöngina, í næstu sókn þar á eftir brunuðum við upp og var það Magnús Halldórsson sem kom okkur í 3-1 eftir sendingu Jóa. Magnús Ingvason gulltryggði síðan 4-1 sigurinn við mikil fagnaðarlæti.

Maður leiksins: Albert.

Liðið í gær:
Olli - Maggi Kók, Albert, Jói, Andri, Elvar, Kristján (f) | Varamenn: Guðni (m), Viktor, Daði, Oddur, Maggi H, Magnús I.

Stórssamningur
Undirritaður var samningur í gær milli Viktors og Vatnaliljanna þess efnis að heimili hans verður opinbert félagsheimili Vatnaliljanna og munu þar fara fram fundir fyrir leiki. Í gærkvöld og nótt var hannað nýtt þjálfaraforrit sem notað verður á fundunum. Er þetta talinn mikilvægur samningur í sögu Liljanna.

12:12 PM

fimmtudagur, maí 22, 2003  
Leikur í kvöld
Í Carlsberg deildinni.
Mótherjar: FC Birgitta Haukdal.
Leikur hefst 21:00 en mæting 20:30 hjá leikmönnum.
Byrjunarlið verður bara að koma í ljós en ég skal gefa það upp að Elvar Geir Magnússon verður í byrjunarliðinu, Olli stendur í markinu til að byrja með og Kristján Ari verður í fremstu víglínu (er ekki veikur, aldrei þessu vant). Það verður hart barist!

8:26 AM

miðvikudagur, maí 21, 2003  
Æfing í kvöld (mið) kl.21:30 á Leiknisvelli
Annar leikur á morgun í Carlsberg deildinni gegn FC Birgittu Haukdal svo mikilvægt að sem flestir mæti! Forföll skulu boðuð í Spjall-kerfið hér til vinstri.

11:16 AM

 
This page is powered by Blogger.
DIV {display: none; height:5px;}